Mikiđ ađ gera hjá minni...Vigdís Tinna Sigurvaldadóttir
Ég verð nú eiginlega að segja það að ég var búin að gefast upp á þessu bloggeríi þar sem það eru ekki nema 24 klukkustundir í sólarhringnum og þar sem ég er í skóla, vinnu, með hest á húsi og fullt af öðru þá er ég ekki alveg að forgangsraða blogginu efst, eins gott held að foreldrar mínir væru ekki sáttir annars. Það er samt búið að vera mikið að gera hjá mér undanfarið, síðustu vikur í skólanum hafa farið í próf og verkefni og er ég ekkert smá fegin að það sé búið, er búin að fá úr einu prófi og einstaklingsverkefni og ég náði báðu þannig að ég er sátt, á eftir að fá út tveimur hópverkefnum en ég hef ekki miklar áhyggjur af þeim þar sem ég lenti í alveg frábærum hópum
.Annað sem er búið að vera að gerast er að ég keypti mér nýjan bíl, hann er nú ekki nýr úr kassanum en hann er samt töluvert nýr eða 2005 módel, Suzuki Grand Vitara og ég verð bara að segja það þetta er enginn smá lúxus að vera komin á svona stelpu jeppa heheh....Já ég er líka byrjuð að vinna á Hressó, eyddi svo miklum tíma þarna að ég var beðin að taka eina vakt svona bara og mér fannst þetta svo gaman að ég ákvað að láta verða að því að fara bara að vinna þarna aðra hverja helgi! Segi bara að það er betra að vera á launum þarna heldur en að vera að eyða á barnum hehe, var hvort eð er alltaf til lokunar!
Já eftir að ég byrjaði á Hressó ákváðum við að skella okkur í bústað mín vakt plús Inga, hún er alltaf plús einn í öllu segir hún hehe, en hún er á hinni vaktinni...skil það ekki alveg þar sem allt skemmtilega fólkið er á okkar vakt! Fórum stelpurnar einar á föstudeginum en Hlynur kom með reyndar með Mekku og skemmtum við okkur vel í trivial, svo var borðað læri í hádeginu á laugardeginum og Naut um kvöldið (enginn smá lúxus) og var potturinn ofnotaður, vaknaði ennþá með rúsínuputta daginn eftir. Strákarnir komu á laugardagskvöldið og var alveg rosalega gaman en ég mun ekki segja meira en það að við spiluðum mikið trivial og skemmtum okkur ekkert smá vel, strákarnir eru strax farnir að skipuleggja aðra ferð, nú er komið að þeim þar sem við stelpurnar sáum alveg um þessa ferð hehe...
Ungfrú DRAMATÍKVigdís Tinna Sigurvaldadóttir
Við skvísurnar skelltum okkur á hressó á laugardaginn og með skvísurnar meina ég að sjálfsögðu moui, Halla og Ragnheiður, fórum á okkar vanalega stað, HRESSÓ og vorum bara í góðum fíling. Eftir þetta kvöld er spurninginn ekki hvað gerðist heldur hvað gerðist ekki!!!!
Við vorum knúsaðar, það var haldið á okkur, við vorum kysstar, við vorum sleiktar, við vorum klipuð (ég fletti beygingunni upp hehe) og svona gæti ég haldið áfram ekki málið. Reyndar var ein okkar sem toppaði allt saman og nefni ég enginn nöfn en sú beit frá sér til að losna undan því að láta kremja á sér hendurnar! En eftir þetta mekilega kvöld höfum við stöllur ákveðið að leggja flöskuna á hilluna en það er ekki alveg ákveðið með dansskóna samt...þeir koma ekki svo auðveldlega af en við munum örugglega minnka þetta samt eitthvað eftir allt þetta.
Alla ég er búin að gera listan klárann fyrir þig Alla mín getur náð í hann þegar þú vilt ;)
Nýtt ár 2008 og engin áramótaheit!Vigdís Tinna Sigurvaldadóttir
Það verður nú að segjast að ég hef verið með eindæmum löt að blogga undanfarið en það er nú bara vegna þess að ég hef einfaldlega ekki nennt því. Ég hef mikið verið að spá í tilgangnum með þessu og hvort eitthver lesi þetta eða hvort þetta sé bara leið fyrir mann til að fá útrás fyrir allar hugsanirnar og í mínu tilfelli allt ruglið og dramatíkina
. Það hefur samt verið alveg meira en nóg að gera hjá mér upp á síðkastið, er búin að komast að því að það er ekkert mál að finna sér nóg að gera!
Ef það er ekki skólinn þá er það vinnana og ef ekki hún þá Garpur og svo erum við Halla María verulega nattnar við að fara á hressó um helgar og iðulega báða dagana.
En talandi um skólann þá náði ég öllum prófunum þrátt fyrir að þurfa að fara í endurtekt þannig að ég slapp eiginlega með skrekkin og hef heitið því að standa mig betur á þessari önnu og lenda ekki í endurtekt í vor hehehhe. En á þessari önn er ég í samningarétti og félagarétti sem mér finnst bara nokkuð spennandi og góðir kennarar. Ég er líka í eignarétti sem virkar frekar þurrt fag en það gæti verið kennarinn hann er með alveg rosalega svæfandi rödd og hann getur blaðrað endalaust, enda les hann líka upp úr bókinni beint eins og maður hafi ekki lesið heima! Fjórði og síðasti áfanginn er nýsköpun og stofnun fyrirtækja og veit ég eiginlega ekki alveg hvernig það verður, hópurinn minn lítur allavegana vel út og tilfinningin er góð en ég sé til með það að kommentera eitthvað á það.
Fyrir þá sem ekki vita þá er ég komin með myspace síðu og er ég nú vön að henda inn myndum eftir helgarnar í flestum tilfellum....
Endilega kvitta fyrir komuna svo maður sjái hvort það sé eitthver að lesa þessa vitleysu heheheh
Nýtt ár 2008 og engin áramótaheit!Vigdís Tinna Sigurvaldadóttir
Það verður nú að segjast að ég hef verið með eindæmum löt að blogga undanfarið en það er nú bara vegna þess að ég hef einfaldlega ekki nennt því. Ég hef mikið verið að spá í tilgangnum með þessu og hvort eitthver lesi þetta eða hvort þetta sé bara leið fyrir mann til að fá útrás fyrir allar hugsanirnar og í mínu tilfelli allt ruglið og dramatíkina
. Það hefur samt verið alveg meira en nóg að gera hjá mér upp á síðkastið, er búin að komast að því að það er ekkert mál að finna sér nóg að gera!
Ef það er ekki skólinn þá er það vinnana og ef ekki hún þá Garpur og svo erum við Halla María verulega nattnar við að fara á hressó um helgar og iðulega báða dagana.
En talandi um skólann þá náði ég öllum prófunum þrátt fyrir að þurfa að fara í endurtekt þannig að ég slapp eiginlega með skrekkin og hef heitið því að standa mig betur á þessari önnu og lenda ekki í endurtekt í vor hehehhe. En á þessari önn er ég í samningarétti og félagarétti sem mér finnst bara nokkuð spennandi og góðir kennarar. Ég er líka í eignarétti sem virkar frekar þurrt fag en það gæti verið kennarinn hann er með alveg rosalega svæfandi rödd og hann getur blaðrað endalaust, enda les hann líka upp úr bókinni beint eins og maður hafi ekki lesið heima! Fjórði og síðasti áfanginn er nýsköpun og stofnun fyrirtækja og veit ég eiginlega ekki alveg hvernig það verður, hópurinn minn lítur allavegana vel út og tilfinningin er góð en ég sé til með það að kommentera eitthvað á það.
Fyrir þá sem ekki vita þá er ég komin með myspace síðu og er ég nú vön að henda inn myndum eftir helgarnar í flestum tilfellum....
Endilega kvitta fyrir komuna svo maður sjái hvort það sé eitthver að lesa þessa vitleysu heheheh
Ađferđafrćđi og jólafrí!Vigdís Tinna Sigurvaldadóttir
Þá er það virkilega komið ... JÓLAFRÍIÐ ... en það er eitthvað sem ég er búin að vera að bíða eftir í svolítinn tíma. Síðasta prófið búið sem var aðferðafræði og verð ég að viðurkenna það að ég veit ekkert hvernig mér gekk því að ég man ekki neitt, ástæðan fyrir því er að ég var svo stressuð að það er óeðlilegt en það er ömulega bílnum mínum að kenna þar sem kvikindið drap á sér á miklubrautinni á leið í prófið og ég varð of sein í það ... pælið í óheppni! Já ég sagði samt kennaranum frá því sem hafði gerst, veit ekki hvort hann trúði mér en ef ekki þá er það bara þannig, þarf alla vegana að taka eitt endurtektapróf 3 eða 5 jan þannig að ég verð að lesa hægt og rólega yfir jólin til að vera örugglega með allt á hreinu þegar ég fer í prófið.Bókhald og Greining ársreikningaVigdís Tinna Sigurvaldadóttir
Þá er það komið og bara eitt próf eftir sem hangir yfir manni eins og ég veit ekki hvað, en það er enginn smá pressa að ná því þar sem fallið er nú þegar orðið 50% pælum aðeins í því...hugs...hugs.
En já Bókhaldsprófið var frekar erfitt það er að segja að ég sat í fjóra tíma og var að reikna og svara skriflegum spurningum í þann tíma heheheh. Veit ekki hvernig hinum gekk með það þar sem það var svolítið erfitt, held að kennarinn sé alveg á því að gefa ekki 10 í þessu prófi, ég held alla vegana að ég nái því ekki alveg en með krosslagða putta fyrir það samt. Það er eitthvern veginn búið að vera svo mikið að gera hjá mér undanfarið og svo mikið hefur gerst að maður er liggur við að springa það er svo mikið að segja frá. Ég náði stjórnskipun en þarf að fara í endurtektarpróf í kröfurétti sem ég bjóst alveg við, ég er alveg viss að ég náði bókhaldi og svo er það bara aðferðafræðin næst. Fer beint daginn eftir prófið austur að ná í Garp og fer með hann upp að Jaðri og þar verður hann í mánuð.
Ég skráði mig á námskeið á Hvanneyri með hann Garp minn og Magga skvís ætlar að koma með okkur heheheh...það verður vonandi mjög fróðlegt og skemmtileg, ég er komin með kerru en ég veit ekki alveg með hvaða bíl, þar sem mamma og pabbi verða á Akureyri þessa helgi, en það hlýtur að reddast .
Ég braut allar reglur og skellti mér á hressó eins og vanalega en nú var rosalegur tilgangur með ferðinni en það er top secret þannig að ég segi ekki frá því nema að það verði kítlað út úr mér heheheh. En við Halla komumst að því að það halda allir að við séum þarna allar helgar blindfullar á djamminu og það trúir okkur enginn að við séum edrú, erum við að pæla í því aðeins eða! Ég drykkjusjúkklingur eða þannig hehehe gæti líka örugglega ekki gengið á þessum hælum ef svo væri mundi bara hrynja í gólfið væri það nú ekki fyndið.
En ég ætla að halda áfram að lesa í Aðferðafræði....
KröfurétturVigdís Tinna Sigurvaldadóttir
Jæja ég var víst búin að segja að ég mundi gera nýtt blogg eftir Kröfuréttarprófið og mér til mikillar hamingju þá er það afstaðið, veit reyndar ekkert hvernig mér gékk og er alveg búin að ákveða það að ef til þess kemur þá tek ég bara endurtektapróf og hef ég þá enn meiri tíma til að læra fyrir það. Ekkert smá mikið efni til prófs og svo kemur náttúrulega ekki nema lítill hluti af því á prófinu og er maður bara heppin að hafa lært rétt fyrir prófið. En þetta var líka 4 tíma próf sem voru 5 tímar fyrir mig út af aukatímanum og eins og í stjórnskipunarprófinu þá sat ég eiginlega allan tíman fyrir utan eitthverjar 20 mín. En ég ætla ekkert að fara út í það hvernig mér gekk þar sem ég hef ekki hugmynd um það, kemst að því þegar að einkunnirnar koma ... krossa bara fingurnar og vona það besta held ég. En í tilefni að þessum stóra áfanga sló ég þessu upp í kæruleysi og skellti mér á Hressó með Höllu Maríu og Regínu og fleirum sem ég veit ekkert hverjir eru og skemmti ég mér bara þokkalega vel, fyrir utan alla gaurana sem voru að klípa eða strúka á manni rassinn, ég var að vera geðveik á þeim! Var samt gaman að fylgjast með skotunum í þessum snilldarlegu pilsum sínun sem þeir flössuðu okkur svo alveg eins og ég veit ekki hvað, fannst það lítið mál!StjórnskipunarrétturVigdís Tinna Sigurvaldadóttir
Ætlaði bara að segja að ég fór í fyrsta lokaprófið í dag og thank god that one is over, ekkert smá mikill léttir sem maður finnur þó að það séu 3 eftir. Ég vissi að þetta yrði erfitt próf þar sem það var 4 tímar ( ég fékk 5 út af lesblindunni) en það sem var að gera mig vitlausa var nú aðallega það að það kæmu svo fáar spruningar, sem sagt 11 krossar sem voru 40%, ein 30% skrifleg spurning og svo ein 20% og önnur 10%, sem sagt voru þetta samtals 14 spurningar á 4 tímum! En mér til mikillar furðu notaði ég allan tíman nema 15 mín eða eitthvað, það var svo mikið að skrifa og krossarnir frekar strembnir, ég elska þegar það geta verið fleiri en einn möguleiki réttur ... not! En Þorgeir var bara ekkert smá rólegur var vappandi um í stofunni reglulega sem var þægilegt því að um leið og maður þurfti að spurja að eitthverju var hann yfirleitt þarna og tilbúin að hjálpa eins mikið og hann mátti ... alltaf gott að hafa góða kennara hehehehe.Ég veit ekki hvort ég á að þora að segja hvernig ég held að mér hafi gengið, en ég segið það bara samt , mér gékk ágætlega ekkert súper vel en ekkert hrikalega heldur, vona bara að þetta sé nóg til að maður nái ... standardinn hjá manni hefur lækkað ekkert smá mikið frá því maður var í framhaldsskóla, er ekki lengur að eltast við að fá háar einkunnir og svekki mig ekki á því heldur. Reyndar verð ég að viðurkenna að ég verð svekkt ef að bókhaldið kemur ekki vel út hjá mér enda var ég ekki í Verzló í 4 ár fyrir ekki neitt og hana nú.
Ég ákvað að vera svo góð við sjálfan mig og slaka á í kvöld ég er að fara hitta Höllu Maríu og ætlum við að fá okkur kínverskan og að mála saman. Jebb you read right, ég er komin með nýtt hobby, farinn að mála með olíumálningu á striga og allt ekkert smá gaman, verðið að sjá myndina sem ég er búin að gera. Hún á reyndar eftir og að þorna og það tekur alveg allaveganna viku! ég er ekki alveg að hafa þolinmæði í það þannig að við ætlum að byrja á nýjum heehehehe. Þið munið heyra í mér næst eftir prófið á laugardaginn sem er kröfuréttur, þangað til eru það baráttu kveðjur til ykkar sem þurfa að þreyta jólaprófin!
Og ég veit ekki hvađVigdís Tinna Sigurvaldadóttir
Það er jú víst komin tími til að skrifa eitthvað meira samkvæmt Öllu Stínu minni, en það er nú ekkert mikið búið að gerast þannig en stóru fréttirnar eru aðalega þær kannski að í dag var síðasti kennsludagurinn í skólanum! En við tekur heil vika af engu nema lestri því það eru svoleiðis stæðurnar af bókum, glósum og glærum sem ég ætla mér að vera búin að ná á hreint áður en ég mæti í mitt fyrsta próf... ég er búin að taka upp þægilegurstu buxurnar ásamt ullarsokkunum og á hettupeysur í úrvali og ekki láta ykkur bregða ef þið kíkið í heimsókn og sjáið ómálaða skrímslið í mér ekki láta ykkur bregðaEn það er búið að vera brjálað að gera í verkefnum, skilaði inn ritgerð í Aðferðafræði sem er 30% af lokaeinkunn og ég skelf á beinunum yfir því að fá almennilega einkunn þar sem það skiptir frekar miklu máli en ég skilaði líka í dag hópaverkefninu í bókhaldi og það tók mikið meira á en mig hafði nokkuð tíman grunað, ekki það að verkefnið sjálft hafi verið erfitt enda stemmir það alveg og allt svoleiðis, átti bara í vandræðum með samskiptin við suma í hópnum sem ég var í en ég get nú bara sjálfri mér um kennt því ég samþykkti að vera með í þessum hóp. Við fengum líka að sjá stundatöfluna fyrir næstu önn og er hún bara frekar næs þó ég segi sjálf frá, nú er bara að ná þessum fögum ha!!!!
En ég og Halla María höfum verið alveg rosalega duglegar að skoða á netinu fullt af fötum og þá helst inn á victoriassecret.com og forever21.com, við ætlum að hittast í kvöld og klára að panta því foreldrar hennar eru að fara til Mineapolis núna 23. og við ætlum að senda pakkana á hótelið til þeirra....ekkert smá sniðugt og sparlegt heheheeh þá hefur maður eitthvað til að hlakka til. Verðum aðal skvísurnar á svæðinu eftir að þau koma heim frá Ameríkunni.´
Ég verð nú samt að viðurkenna að ég komst að líka þessu snildar reglu sem hún Alla var að segja mér frá en hún er sú að þeir sem eru á fyrstu önn í háskóla eru undanþegnir jólagjafakaupum þau jól! Ég ætla samt að gefa mömmu og pabba og bjögga og lórey en ég held að það muni ekki vera meira í ár enda leyfir fjárhagurinn það kannski ekki heldur.
Og hún lifir!Vigdís Tinna Sigurvaldadóttir
Það er alveg ótrúlegt hvað maður er lélegur í þessu bloggi núna hvort sem það er sökum tímaleysis eða leti þegar tími gefst til. En ég var að vinna þvílíkt þrekverk þar sem ég setti inn nokkrar myndir sem ég hef smellt af á damminu síðustu helgar
en restina af myndunum er að finna á myspace síðunni minni, já ég er komin með eina slíka ... heeheh. En í dag eru bara 2 vikur eftir af kennslu í skólanum og aðeins eitt skilaverkefni að frátaldri ritgerðinni sem ég hendi inn á morgun ... á bara eftir að gera inngang og lokaorða og svo er þetta bara allt komið. En það er nú samt svolítið bjartsýnt þar sem ég verð byrjuð að lesa fyrir prófin strax á miðvikudaginn svo maður eigi nú möguleik á að ná þessu öllu saman.Það er uppskeruhátíð hestamanna á laugardaginn þannig að ég mun skrifa inn slúðrið þá...
